Lýsuskarð
Ógleymanlegur dagur á fjalli
Erfið fjallganga 13 km löng, 6-7 klst með stoppum, Hækkun: 604 m.

Ferðaáætlun

Dagurinn hefst á Midhrauni Lava Resort á Suður-Snæfellsnesi þar sem hópurinn sest í rútu sem ekur okkur til Grundarfjarðar, nánar tiltekið að Grundarfossi þar sem gangan yfir Lýsuskarð hefst. Gestir fá orkuríkar veitingar í gönguna og glæsileiki Grundarfoss sendir okkur af stað. Gangan er mest krefjandi í upphafi þar sem ganga þarf á brattann en annars er þetta erfið ganga, 13 km löng, max 604 metrar yfir sjávarmáli. Gengið er á milli fjallshlíða og tinda, gamlan þjóðveg sem þræddur er um dali og gljúfur beint yfir Snæfellsnes, frá norðri til suðurs. Leiðsögumaður segir frá jarðfræði og þjóðsögum í upphafi ferðar og á leiðinni en margt er að sjá á leiðinni og gefum okkur góðan tíma til að njóta. Að lokum fer hópurinn niður úr sjálfu Lýsuskarði og endar við Lýsulaugar þörungaböð þar sem drykkir og veitingar bíða þeirra frá Hlaðanum Midhrauni, veitingastað Lava Resort. Göngumenn slaka á eftir gönguna og njóta matarins úti í guðs grænni náttúru. Síðan er farið í Lýsulaugar þörungaböð sem eru fræg fyrir heilnæmt jarðhitavatn fullt af steinefnum. Gestirnir slaka á í sundlauginni og heitum pottum og halda svo loks aftur á Midhraun Lava Resort aftur þar sem tekið er á móti hópnum með kokteilum við hraunbeðið og deginum lýkur með dýrindis þriggja rétta máltíð á veitingastaðnum Hlaðanum.

Gott að vita

Gestir verða að hafa með sér föt fyrir fjallgöngur. Veðrið á Íslandi getur breyst hratt svo þú þarft að hafa með þér föt fyrir kalt rok og rigningu.

Gönguskór og vatnsflösku eru nauðsynleg.

Gangan sjálf er 13 km löng og tekur 7 - 8 tíma með viðkomu.

Hæðin er 604 m. Þetta er erfið ganga.

Ekki er mælt með þessari leið fyrir fólk með heilsufarsvandamál sem geta haft áhrif á þol.