Það er fátt betra en að njóta góðs matar úti í náttúrunni. Staldraðu við og njóttu augnabliksins.

Sigga Lóa

Eigandi

Ég er íslensk kona og elska gönguferðir og góðan mat. Það er fátt sem jafnast á við það að standa hátt uppi á fjalli og taka inn útsýnið og náttúruna. Það minnir mann á það hve lítil við erum í þessum heimi og amstur hversdagsins virðist minnka. Annað sem ég hef mjög gaman af, er reglulega góður matur. Það er bara eitthvað við það að njóta góðs matar úti í náttúrunni. Þess vegna ákvað ég að stofna mitt eigið fyrirtæki, Loa Tours. Mig langaði að vinna við það sem mér finnst allra skemmtilegast: útivera, góður matur og góður félagsskapur.

apríl 2023